Ætlar að fá Kvaratskhelia til Real Madrid - Ngumoha ekki til sölu - Mourinho vill Bernardo Silva
   sun 07. júní 2026 20:10
Brynjar Ingi Erluson
Rice verður varafyrirliði Englands
Declan Rice er nýr varafyrirliði Englands
Declan Rice er nýr varafyrirliði Englands
Mynd: EPA
Declan Rice, leikmaður Arsenal, verður varafyrirliði Englands á HM í sumar. Þetta staðfesti Thomas Tuchel, þjálfari landsliðsins, í dag.

Þessi 27 ára gamli miðjumaður var lykilmaður í liði Arsenal sem vann ensku úrvalsdeildina í síðasta mánuði.

Rice gegnir einnig gríðarlega mikilvægu hlutverki á miðsvæði enska landsliðsins og er í miklum metum hjá Thomas Tuchel.

Hann hefur nú fengið enn meiri ábyrgð fyrir heimsmeistaramótið, en hann verður varafyrirliði landsliðsins.

Harry Kane er fyrirliði Englands, en búist er við því að Rice taki á endanum við fyrirliðabandinu þegar Kane ákveður að láta staðar numið.

Rice hefur tvisvar áður borið fyrirliðabandið. Hann var fyrirliði í fjarveru Kane í vináttulandsleik gegn Wales í október og einnig gegn Belgíu árið 2024. Kyle Walker var varafyrirliði Englands á EM 2024 en áður hafði Jordan Henderson gegnt því hlutverki.

„Declan Rice er varafyrirliðinn minn. Við áttum þessar samræður þegar Harry var ekki með okkur. Við byrjuðum með Ollie Watkins í fremstu víglínu og þá var Declan fyrirliði. Þá sagði ég honum frá ákvörðun minni,“ sagði Tuchel.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner