Ætlar að fá Kvaratskhelia til Real Madrid - Ngumoha ekki til sölu - Mourinho vill Bernardo Silva
   sun 07. júní 2026 22:30
Brynjar Ingi Erluson
Segja að Nunez vilji snúa aftur til Liverpool
Darwin Nunez
Darwin Nunez
Mynd: EPA
Spænska blaðið Mundo Deportivo heldur því fram að úrúgvæski framherjinn Darwin Nunez vilji snúa aftur til enska úrvalsdeildarfélagsins Liverpool í sumar.

Nunez yfirgaf Liverpool síðasta sumar og gekk í raðir Al Hilal í Sádi-Arabíu.

Hann er sagður óánægður þar og hafa fjölmiðlar greint frá því að hann hafi náð samkomulagi við félagið um að rifta samningi sínum.

Mundo Deportivo segir mörg félög í ensku úrvalsdeildinni hafa áhuga á Nunez, en að forgangsverkefni hans sé að reyna að komast aftur til Liverpool.

Nunez, sem er 26 ára gamall, eyddi þremur árum á Anfield þar sem hann skoraði 40 mörk í 143 leikjum. Hann var alls ekki allra, enda voru margir stuðningsmenn orðnir þreyttir á færanýtingu hans, en ákefðina og ástríðuna vantaði ekki.

Hvort Liverpool hafi áhuga á að taka aftur við honum verður að koma í ljós.

Chelsea og Newcastle United eru einnig sögð áhugasöm um Nunez, sem mun spila stórt hlutverk með úrúgvæska landsliðinu á HM í þessum mánuði.
Slapp
banner
banner
banner