Umboðsteymi Alberts Guðmundssonar hefur boðið Juventus að kaupa íslenska landsliðsmanninn frá Fiorentina. Þetta kemur fram í ítölskum fjölmiðlum.
Það kemur hins vegar einnig fram að Luciano Spalletti, stjóri Juventus, sé ekki alveg viss með Albert þrátt fyrir að félagið gæti fengið hann á góðu verði.
Tuttosport greinir frá því að umboðsteymi Alberts sé á fullu að finna nýtt félag fyrir hann en Albert kom að 16 mörkum í 46 leikjum í öllum keppnum á síðasta tímabili. Fiorentina var í mikilli fallbaráttu í ítölsku deildinni.
Fiorentina vill fá 15-18 milljónir evra fyrir hann.



