Ætlar að fá Kvaratskhelia til Real Madrid - Ngumoha ekki til sölu - Mourinho vill Bernardo Silva
   sun 07. júní 2026 23:05
Brynjar Ingi Erluson
Staðfestir komu Mourinho - Pepe verður í þjálfarateyminu
Mourinho snýr aftur til Real Madrid
Mourinho snýr aftur til Real Madrid
Mynd: EPA
Florentino Perez náði endurkjöri sem forseti Real Madrid í kvöld og staðfesti um leið endurkomu portúgalska þjálfarans José Mourinho, sem mun skrifa undir tveggja ára samning á næstu dögum.

Perez vann forsetakosningarnar með sannfærandi hætti, eða með um 66 prósentum atkvæða.

Hann hefur lofað því að leysa öll vandamál félagsins og beindi orðum sínum sérstaklega til þeirra stuðningsmanna sem kusu hann ekki.

Í leiðinni staðfesti hann að Jose Mourinho verði næsti þjálfari liðsins, en það hefur legið í loftinu í dágóðan tíma. Mourinho yfirgefur Benfica til að taka við Real Madrid á ný.

Samkvæmt spænskum miðlum mun Pepe, fyrrum leikmaður Real Madrid og portúgalska landsliðsins, verða Mourinho til aðstoðar. Hann lék undir stjórn Mourinho hjá Real Madrid, en lagði skóna á hilluna fyrir tveimur árum.

„Einn besti þjálfari heims er kominn aftur. Alvöru Madrídingur. Það er José Mourinho,“ sagði Perez þegar hann fagnaði endurkjörinu.

Mourinho sendi sjálfur frá sér myndband þar sem hann sagði: „Já, auðvitað vann Florentino Perez.“ .


Slapp
banner
banner
banner