Ætlar að fá Kvaratskhelia til Real Madrid - Ngumoha ekki til sölu - Mourinho vill Bernardo Silva
banner
   sun 07. júní 2026 23:30
Brynjar Ingi Erluson
Stjörnuleikmaður Kanada líklega ekki með á HM
Moise Bombito í leik með Kanada
Moise Bombito í leik með Kanada
Mynd: EPA
Moise Bombito, varnarmaður kanadíska landsliðsins, verður líklega ekki með liðinu á HM.

Bombito er 26 ára gamall og einn af lykilmönnum kanadíska landsliðsins.

Hann fótbrotnaði á síðasta ári og hefur átt erfitt með að jafna sig almennilega af meiðslunum.

Varnarmaðurinn spilaði aðeins 30 mínútur í þremur undirbúningsleikjum Kanada fyrir HM og fann fyrir sársauka eftir leikinn gegn Úsbekistan.

Líklegasta niðurstaðan er að annar leikmaður verði kallaður inn í hans stað, en Jesse Marsch, þjálfari liðsins, ætlar ekki að taka lokaákvörðun strax. Hann hefur enn trú á að Bombito verði klár.

„Hann er hérna og er enn að vinna sig í gegnum nokkur smávægileg vandamál á bataveginum. Við viljum sjá hvort hann nái sér í 100 prósent stand og gefum honum því allt fram á síðustu stundu,“ sagði Marsch við fjölmiðla í dag.

Þetta yrði gríðarlegt högg fyrir Kanada, sem er eitt þriggja gestgjafaliða HM.

Ralph Priso, leikmaður Vancouver Whitecaps, er líklegastur til að koma inn í hans stað. Hann hefur æft með liðinu þrátt fyrir að hafa ekki verið valinn í 26 manna hópinn og kom meðal annars við sögu í 2-0 sigrinum á Úsbekistan.

Annar lykilmaður Kanada, Alphonso Davies, er einnig í kappi við tímann, en óvíst er hvort hann nái fyrsta leiknum gegn Bosníu og Hersegóvínu á föstudag.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner
banner