Ætlar að fá Kvaratskhelia til Real Madrid - Ngumoha ekki til sölu - Mourinho vill Bernardo Silva
   sun 07. júní 2026 20:34
Brynjar Ingi Erluson
Van Persie rekinn frá Feyenoord (Staðfest)
Mynd: EPA
Hollenska félagið Feyenoord hefur staðfest að Robin van Persie hafi verið látinn fara frá félaginu.

Van Persie sneri aftur til uppeldisfélagsins í febrúar á síðasta ári og stýrði liðinu í eitt og hálft tímabil.

Honum tókst að koma Feyenoord í forkeppni Meistaradeildar Evrópu fyrir næstu leiktíð, en það var ekki nóg að mati stjórnarmanna félagsins, sem voru vonsviknir yfir því að honum hefði ekki tekist að vinna titil á tíma sínum þar.

Feyenoord hafnaði í öðru sæti hollensku úrvalsdeildarinnar, nítján stigum á eftir PSV.

Alls vann Van Persie 30 af 58 leikjum sínum sem þjálfari liðsins. Það þótti ekki nóg hjá stóru félagi á borð við Feyenoord og því var ákveðið að róa á önnur mið.

„Robin van Persie hefur gefið allt sitt til félagsins síðasta eina og hálfa árið. Hann á hrós skilið fyrir að klára erfitt tímabil með því að ná öðru sæti. Sæti í Meistaradeildinni er tryggt og það er auðvitað gríðarlega mikilvægt, en við höfum gert ítarlega greiningu innanhúss þar sem við fórum yfir þróunina á leik liðsins og neikvæða þróun í stigasöfnun, bæði í deildinni og í Evrópu.

„Niðurstaðan er því sú að betra sé að hefja næsta tímabil með nýjan þjálfara,“ sagði Devy Rigaux, tæknilegur stjórnandi Feyenoord.


Slapp
banner