Fotbolti.net
07.07.06 - 09:22
Stefán Guðberg Sigurjónsson

N'Gotty til Birmingham (Staðfest)

Bruno N'Gotty fagnar með stuðningsmönnum Bolton

Bruno N'Gotty fagnar með stuðningsmönnum Bolton

Canon

Mynd: Getty Images

Bruno N'Gotty hefur gengið til liðs við Birmingham í 1. deildinni. N'Gotty, sem er 35 ára varnarmaður, var samningslaus hjá Bolton en vildi vera áfram á Englandi.
,,Ég fékk boð frá öðrum klúbbum en hingað vildi ég fara og ég vildi einnig vera áfram á Englandi. Ég tel Birmingham vera góðan kost. Klúbburinn á góðan völl og mara góða stuðningsmenn. Þeir voru óheppnir að fara niður á síðasta tímabili,” sagði þessi snjalli Frakki.

Steve Bruce, stjóri Birmingham, hefur haft mikið að gera á leikmannamarkaðnum í sumar og hefur auk N’Gotty fengið þá Cameron Jerome, Neil Danns og Stephen Kelly til félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.