07.07.06 - 13:08
Magnús Már Einarsson
Heskey til Wigan (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson


Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Wigan hefur gengið frá kaupunum á framherjanum Emile Heskey frá Birmingham á 5,5 milljónir punda og er hann dýrasti leikmaður fyrrnefnda liðsins frá upphafi.
Wigan náði samkomulagi um kaupverð við Birmingham fyrir þennan 28 ára leikmann í gær og nú fyrir stuttu skrifaði þessi fyrrum leikmaður Liverpool undir þriggja ára samning við félagið.
Heskey kemur í stað Jason Roberts sem var seldur til Blackburn Rovers á dögunum og eru menn hjá Wigan ánægðir með að fá hann eftir að hafa misst af Andrew Johnson sem fór til Everton.
Heskey kemur í stað Jason Roberts sem var seldur til Blackburn Rovers á dögunum og eru menn hjá Wigan ánægðir með að fá hann eftir að hafa misst af Andrew Johnson sem fór til Everton.
