07.08.06 - 12:48
Hafliði Breiðfjörð
Hernan Crespo til Inter Milan (Staðfest)

Crespo í leik með argentíska landsliðinu.

Mynd: Getty Images

Crespo í leik með argentíska landsliðinu.

Mynd: Getty Images
Hernan Crespo framherji Chelsea er genginn í raðir Inter Milan á Ítalíu og gerir tveggja ára samning við félagið. Crespo fer frítt til Inter en Chelsea eiga þó möguleika á að fá hann aftur á Stamford Bridge eftir eina leiktíð.
Marco Branca íþróttafulltrúi Inter, fulltrúi Chelsea, Crespo og umboðsmaður hans hittust á fundi í Mílanó í morgun þar sem gengið var frá þessum samningum. Crespoo fékk nýlega ítallskt ríkisfang og hefur aldrei farið leynt með áhuga sinn á að fara í ítölsku deildina á ný.
Hann hóf ferilinn með River Plate í Argentínu þar sem hann lék árin 1993-1996. Árið 1996 var hann keyptur til Parma þar sem hann lék til ársins 2000 er hann fór til Lazio. Hann var hjá Inter Milan tímabilið 2002-2003 en þá keypti Chelsea hann og lánaði svo aftur til AC Milan tímabilið á eftir. Hann lék með Chelsea á síðustu leiktíð en er nú farinn til Inter á ný.