07.08.07 - 21:25
Sindri Þór Þorgeirsson
Craig Gordon til Sunderland (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Sunderland gengu í dag frá sínum stærstu kaupum í sumar þegar þeir keyptu skoska landsliðsmarkvörðinn Craig Gordon frá skoska liðinu Hearts en eins og fram hefur komið var hann eftirsóttur af fleiri liðum í ensku úrvalsdeildinni.
Talið var að Gordon myndi fara til Birmingham á morgun til að hefja viðræður við Aston Villa en Roy Keane virðist hafa náð að sannfæra hann um að framtíð hans væri hjá Sunderland en þar hefur Gordon æft síðan tilboð Sunderland í hann var samþykkt.
Kaupverðið á Gordon er 9 milljónir punda en Sunderland mun greiða Hearts 7 milljónir núna og hinar 2 milljónirnar fara eftir hversu marga leiki Gordon leikur með Sunderland.
Kaupverðið á Gordon er 9 milljónir punda en Sunderland mun greiða Hearts 7 milljónir núna og hinar 2 milljónirnar fara eftir hversu marga leiki Gordon leikur með Sunderland.
Heimild: BBC
