Fotbolti.net
07.08.26 - 08:56
Elvar Geir Magnússon

Af hverju var Essien á Hlíðarenda?

Essien var allur hinn rólegasti á bekknum á Hlíðarenda í gær.

Essien var allur hinn rólegasti á bekknum á Hlíðarenda í gær.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Michael Essien, fyrrum stórstjarna Chelsea, var á Hlíðarenda í gær þegar danska liðið Nordsjælland vann 2-0 útisigur á Val í fyrri viðureign liðanna í forkeppni Sambandsdeildarinnar.

Essien vann fjölda titla með Chelsea á leikmannaferli sínum en hann var frábær miðjumaður. Hann varð tvívegis enskur meistari og vann einnig Meistaradeildina 2012 og tvívegis FA-bikarinn.

Essien er aðstoðarþjálfari Nordsjælland í dag en hann hefur starfað fyrir félagið síðan 2020.
Lestu um leikinn: Valur 0 - 2 Nordsjælland
Essien er frá Gana og lék fyrir landslið þjóðarinnar. Það er mjög sterk tenging milli Nordsjælland og Gana en Right to Dream akademían keypti félagið 2015 og opnaði það gátt fyrir unga ganverska leikmenn að koma í evrópska boltann.

Leikmenn á borð við Mohammed Kudus, Ibrahim Osman, Ernest Nuamah og Kamaldeen Sulemana hafa komið í gegnum þessa leið.

„Við erum með marga stráka frá Afríku hérna, svo mér fannst tilvalið að koma að þessu og aðstoða þá yngri, þeir eru framtíðin og við þurfum að veita þeim öll þau ráð og þá reynslu sem þeir þurfa á að halda.," sagði Essien í viðtali fyrr á árinu.
Essien var frábær á miðju Chelsea.

Essien var frábær á miðju Chelsea.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.