07.08.26 - 18:11
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Hrannar Snær í Víking (Staðfest)


Mynd: Víkingur


Mynd: Víkingur
Hrannar Snær Magnússon er genginn til liðs við Víkings frá norska félaginu Kristiansund. Hann skrifar undir fjögurra og hálfs árs samning.
Hrannar er kantmaður sem getur einnig leikið sem bakvörður. Meiðsli hafa herjað á Víking en félagið var í leit að kantmanni eftir að Óskar Borgþórsson ökklabrotnaði í lok síðasta mánaðar.
Hrannar er kantmaður sem getur einnig leikið sem bakvörður. Meiðsli hafa herjað á Víking en félagið var í leit að kantmanni eftir að Óskar Borgþórsson ökklabrotnaði í lok síðasta mánaðar.

TENGT EFNI
Kjartan Kári ekki í Víking - Hrannar Snær á leiðinni og Erlingur í FH
Hrannar er 24 ára en hann hóf ferilinn hjá KF. Hann hefur einnig spilað með KH, Selfossi og Aftureldingu.
Hrannar skoraði 12 mörk í 26 leikjum með Aftureldingu í Bestu deildinni síðasta sumar og gekk til liðs við Kristiansund í kjölfarið. Hann kom við sögu í níu leikjum hjá norska liðinu.
Hrannar skoraði 12 mörk í 26 leikjum með Aftureldingu í Bestu deildinni síðasta sumar og gekk til liðs við Kristiansund í kjölfarið. Hann kom við sögu í níu leikjum hjá norska liðinu.
Knattspyrnudeild Víkings og norska úrvalsdeildarfélagið Kristiansund hafa komist að samkomulagi um kaupverð fyrir Hrannar Snæ Magnússon. Hrannar skrifar undir fjögurra og hálfs árs samning, eða út árið 2030.
— Víkingur Fótbolti (@vikingurfc) August 7, 2026
Sjá nánar : https://t.co/D4VZsqTDdz pic.twitter.com/gkNuIawze3
