07.08.26 - 14:58
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Kjartan Kári ekki í Víking - Hrannar Snær á leiðinni og Erlingur í FH

Kjartan Kári

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hrannar Snær

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kjartan Kári

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kjartan Kári Halldórsson er ekki á leiðinni í Víking eftir allt saman. 433 greindi frá því í dag að viðræður hefðu siglt í strand og rímar það við heimildir Fótbolta.net, en FH hafði samþykkti tilboð Víkings í Kjartan Kára á miðvikudag.
Hrannar Snær Magnússon færist hins vegar nær Víkingi, hann er að koma í Víkina eftir hálft ár hjá norska félaginu Kristiansund.
Hrannar Snær Magnússon færist hins vegar nær Víkingi, hann er að koma í Víkina eftir hálft ár hjá norska félaginu Kristiansund.

TENGT EFNI
Kaupir Víkingur Hrannar Snæ? - Bras í viðræðum við Kjartan Kára
Víkingur var í leit að kantmanni eftir að Óskar Borgþórsson ökklabrotnaði í lok síðasta mánaðar. Hrannar átti frábært tímabil með Aftureldingu og var Víkingur eitt af þeim félögum sem höfðu áhuga á honum í vetur.
Þó að Kjartan Kári fari ekki í Víking herma heimildir Fótbolta.net að Erlingur Agnarsson muni fara í FH frá Víkingi, en Fótbolti.net hafði sagt frá því að hluti af kauptilboði Víkings í Kjartan Kári hefði verið að FH fengi Erling í skiptum.
Þó að Kjartan Kári fari ekki í Víking herma heimildir Fótbolta.net að Erlingur Agnarsson muni fara í FH frá Víkingi, en Fótbolti.net hafði sagt frá því að hluti af kauptilboði Víkings í Kjartan Kári hefði verið að FH fengi Erling í skiptum.

Hrannar Snær

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Erlingur Agnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

