Fotbolti.net
07.08.26 - 11:26
Elvar Geir Magnússon

Kaupir Víkingur Hrannar Snæ? - Bras í viðræðum við Kjartan Kára

Hrannar Snær Magnússon.

Hrannar Snær Magnússon.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hrannar Snær Magnússon er orðaður við Víking en Íslandsmeistararnir eru í leit að leiðum til að styrkja leikmannahóp sinn. Meiðsli hafa herjað á Víkinga og þá eru erlend félög að bera víurnar í þeirra leikmenn.

Hrannar er 24 ára gamall kantmaður sem vakti mikla athygli með Aftureldingu í Bestu deildinni í fyrra þar sem hann skoraði 12 mörk í 26 leikjum. Hann hefur einnig leikið sem bakvörður.

Hann gekk til liðs við Kristiansund í Noregi í vetur en hefur aðeins komið við sögu í níu deildarleikjum og í öll skiptin sem varamaður.

Valur hefur einnig sýnt áhuga á að fá Hrannar í sínar raðir.
Erlingur hluti af samkomulagi Víkings og FH
TENGT EFNI

Erlingur hluti af samkomulagi Víkings og FH

Eins og fjallað hefur verið um þá er Víkingur í viðræðum við Kjartan Kára Halldórsson eftir að FH samþykkti tilboð félagsins. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hafa þær viðræður þó ekki gengið eins smurt og Víkingar vonuðust eftir en eru enn í gangi.

Kjartan Kári er 23 ára kantmaður sem hefur verið lykilmaður FH síðustu tímabil. Fyrir rúmu ári samþykkti FH tilboð frá Val í Kjartan Kára en hann hafnaði þá tækifærinu að fara í Val og endursamdi við FH.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net eru fleiri leikmenn á radarnum hjá Víkingum.
Kjartan Kári Halldórsson.

Kjartan Kári Halldórsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.