Markvarðavandræðin endalausu hjá Víkingum

Ögmundur meiddist í upphitun Víkings í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Snær meiddist gegn KA í byrjun júlí og var frá í tæpar þrjár vikur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ingvar Jónsson greindist með krabbamein fyrr á tímabilinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ögmundur meiddist í upphitun Víkings í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ögmundur Kristinsson meiddist í upphitun og gat því ekki tekið þátt í leiknum. Aron Snær Friðriksson tók sæti hans í byrjunarliðinu en hann hefur sjálfur glímt við meiðsli undanfarin misseri.
Aron þurfti að fá aðhlynningu um miðbik síðari hálfleiks og virtist hann kveinka sér yfir eymslum í baki.
Ingvar Jónsson greindist fyrr á tímabilinu með krabbamein og hefur því verið frá keppni. Þá var þriðji markvörður liðsins, Uggi Jóhann Auðunsson, að glíma við brjósklos og var frá.
Uggi Jóhann lék með BF108 í 5. deildinni á síðasta tímabili, en Jochum Magnússon var þá þriðji markvörður meistaraflokksins.
Jochum var lánaður til Völsungs fyrir tímabilið en meiddist í byrjun júlí og hefur ekki spilað síðan.
Alls eru fimm markverðir samningsbundnir Víkingi og hafa þeir allir glímt við meiðsli á tímabilinu.
Ef allt fer í súginn hjá Víkingi og útileikmaður neyðist til að fara í markið hefur miðjumaðurinn Viktor Örlygur Andrason verið nefndur sem besti kandídatinn í það verkefni og er hann sagður liðtækur í markinu.

Aron Snær meiddist gegn KA í byrjun júlí og var frá í tæpar þrjár vikur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ingvar Jónsson greindist með krabbamein fyrr á tímabilinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jochum Magnússon var lánaður til Völsungs fyrir tímabil en meiddist í byrjun júlí.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Uggi Jóhann var frá vegna brjóskloss fyrr á tímabilinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
