Fotbolti.net
07.08.26 - 18:01
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Yirenkyi til Coventry fyrir metfé (Staðfest)

Yirenkyi til Coventry fyrir metfé (Staðfest)
Canon

Mynd: Aðsend

Coventry hefur keypt ganverska miðjumanninn Caleb Yirenkyi frá danska liðinu Nordsjælland fyrir 26 milljónir punda. Hann er dýrasti leikmaður í sögu félagsins.

Hann er hjá umboðsskrifstofunni CAA Stellar og er Magnús Agnar Magnússon umboðsmaður Ganverjans.
Íslenskur umboðsmaður í kringum metkaup Coventry
TENGT EFNI

Íslenskur umboðsmaður í kringum metkaup Coventry

Yirenkyi er tvítugur var eftirsóttur af öðrum liðum í úrvalsdeildinni og annars staðar í Evrópu en hann hefur skrifað undir langtímasamning við nýliðana í úrvalsdeildinni.

Hann er sjötti leikmaðurinn sem Frank Lampard, stjóri Coventry, fær til sín í sumar. Félagið hefur eytt rúmlega 85 milljónum punda.

Yirenkyi var valinn ungi leikmaður ársins í dönsku deildinni á síðustu leiktíð og var í liði ársins.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.