07.09.07 - 10:43
Hafliði Breiðfjörð
Wenger skrifar undir hjá Arsenal (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Arsene Wenger hefur skrifað undir nýjan samning við Arsenal og verður því áfram starfandi sem knattspyrnustjóri liðsins til ársins 2011 hið minnsta. Frakkinn framlengdi þar með fyrri samning sinn sem átti að renna út næsta sumar um þrjú ár.
,,Hjarta mitt er bundið þessu fótboltafélagi svo það var alltaf ætlun mín að skrifa undir nýjan samning," sagði Wenger í dag. ,,Það hefur djúpra rætur og gríðarlega arfleifð. Stefna mín er að halda þessum gildum og hjálpa til við að skapa nýja sögu fyrir kynslóðir framtíðarinnar."
Framtíð Wenger hjá félaginu var talin í óvissu eftir að David Dein varaformaður félagsins og náinn vinur hans hætti hjá félaginu í apríl og eftir að framherjinn Thierry Henry fór til Barcelona í sumar.
,,Arsenal er félag lífs míns," hélt Wenger áfram. ,,Mér hefur verið treyst fyrir því að hafa fullt frelsi til að framkvæma áætlanir mínar og láta þær ganga eftir."

Heimild: BBC