07.09.07 - 12:29
Sindri Þór Þorgeirsson
Sander Westerveld til Spörtu frá Rotterdam (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Sander Westerveld fyrrverandi markvörður Liverpool og hollenska landsliðsins hefur nú gengið í raðir Spörtu frá Rotterdam og skrifar undir fjögurra mánaða samning við félagið.
Westerveld er búinn að vera á lausu í allt sumar eftir að hann var leystur undan samningi hjá spænska liðinu Almeria í lok síðasta tímabils.
Hann er keyptur til liðsins vegna þess að núverandi markvörður liðsins Cor Varkevisser hefur engan vegin staðið undir væntingum það sem af er tímabils.
Fjölmörg lið voru talin hafa áhuga á að fá þennan snjalla markvörð til liðs við sig en Sparta vann að lokum kapphlaupið.

Heimild: Sky Sports