Boltinn í Þjóðadeildinni heldur áfram að rúlla í dag með átta leikjum - hvorki meira né minna.
Það er stórleikur í A-deildinni klukkan 18:45 þegar Holland fær Ítalíu í heimsókn. Holland vann 1-0 sigur á Póllandi í fyrsta leik sínum á meðan Ítalía gerði jafntefli við Bosníu. Bosnía og Pólland eigast einnig við í dag.
Það er einnig leikið í B-deild og C-deild í dag en alla leiki dagsins má sjá hér að neðan.
mánudagur 7. september
UEFA NATIONS LEAGUE A: Group Stage
18:45 Holland - Ítalía (Stöð 2 Sport 2)
18:45 Bosnia Herzegovina - Pólland
UEFA NATIONS LEAGUE B: Group Stage
18:45 Israel - Slóvakía
18:45 Tékkland - Skotland
18:45 Norður Írland - Noregur
18:45 Austurríki - Rúmenía
UEFA NATIONS LEAGUE C: Group Stage
14:00 Kasakstan - Hvíta Rússland
18:45 Albanía - Litháen
Athugasemdir