Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 07. september 2022 00:01
Brynjar Ingi Erluson
4. deild: Undanúrslitin klár - Svakaleg dramatík í Fagralundi
Árbær fer í undanúrslit
Árbær fer í undanúrslit
Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson
Einherji mun mæta Ými
Einherji mun mæta Ými
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Árbær, Einherji, Hvíti riddarinn og Ýmir eru öll komin í undanúrslit 4. deildar karla.

Árbær fer í undanúrslitin þrátt fyrir 2-0 tap fyrir Uppsveitum en Árbær vann fyrri leikinn 8-0. Árbær mun því mæta Hvíta riddaranum í undanúrslitum en liðið vann 4-1 sigur á Tindastóli í kvöld og fer samanlagt áfram, 6-2. Patrekur Orri Guðjónsson skoraði tvö.

Einherji vann Árborg, 2-0. Liðið fer örugglega áfram eftir að hafa unnið fyrri leikinn 3-0. Einherji spilar við Ými sem komst áfram í rosalegum leik í Fagralundi. Fyrri leiknum lauk með 4-3 sigri Ýmis en eftir venjulegan leiktíma í kvöld var staðan 2-1 fyrir KFK.

Því var framlengt en dómari leiksins hafði rekið tvo leikmenn KFK af velli. Þrátt fyrir það komst KFK í 3-1 í framlengingunni en Ýmir jafnaði úr næstu spyrnu.

Tveir leikmenn á bekknum hjá KFK fengu að líta rauða spjaldið í kjölfarið og þegar tvær mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma í framlengingu skoruðu Ýmismenn sigurmarkið og tryggðu þannig farseðilinn í undanúrslitin.

Eftir leik fékk annar leikmaður KFK rauða spjaldið. Mikil dramatík í Fagralundi.
Úrslit og markaskorarar:

Uppsveitir 2 - 0 Árbær (2-8 samanlagt, Árbær áfram)
1-0 Aron Freyr Margeirsson ('71 )
2-0 Máni Snær Benediktsson ('76 )

Einherji 2 - 0 Árborg (5-0 samanlagt, Einherji áfram)
1-0 Rubén Menéndez Riesco ('37 )
2-0 Maxim Iurcu ('77 )

Hvíti riddarinn 4 - 1 Tindastóll (6-2 samanlagt, Hvíti riddarinn áfram)
1-0 Eiður Andri Thorarensen ('21 )
2-0 Patrekur Orri Guðjónsson ('31 )
3-0 Patrekur Orri Guðjónsson ('57 , Mark úr víti)
4-0 Kolfinnur Ernir Kjartansson ('85 )
4-1 Benedikt Kári Gröndal ('90 )

KFK 3 - 3 Ýmir (6-7 samanlagt og fer Ýmir áfram)
Athugasemdir
banner
banner
banner