Fotbolti.net
07.10.26 - 09:06
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Sungið á fyrstu æfingu nýliðans

Skrifar frá Króatíu

Líf Joostdóttir van Bemmel.

Líf Joostdóttir van Bemmel.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eimskip
Líf Joostdóttir van Bemmel er nýliði í íslenska landsliðinu sem er núna að undirbúa sig fyrir fyrri leik sinn gegn Króatíu í umspili fyrir HM.

Hún mætti á sína fyrstu landsliðsæfingu í gær í Rovinj í Króatíu.
Staðan á stelpunum okkar - Lykilpóstar í gír og spennandi nýliðar
TENGT EFNI

Staðan á stelpunum okkar - Lykilpóstar í gír og spennandi nýliðar

Svo vildi skemmtilega til að Líf varð 19 ára gömul í gær og leikmenn landsliðsins ákváðu þess vegna að syngja afmælissönginn fyrir hana.

KSÍ birti skemmtilegt myndband af þessu á samfélagsmiðlum sínum.

Líf hefur vakið athygli fyrir sína frammistöðu með Breiðabliki, toppliði Bestu deildarinnar, í sumar. Líf hefur spilað 19 leiki með Breiðabliki í Bestu deildinni í sumar og skorað sex mörk. Hún er hugsuð sem bakvörður í landsliðinu en hefur mest spilað framar hjá Blikum í sumar.

Hér fyrir neðan má sjá myndbandið frá KSÍ.


Líf hefur leikið mjög vel með Breiðabliki í sumar.

Líf hefur leikið mjög vel með Breiðabliki í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.