Fotbolti.net
07.12.05 - 18:07
Hafliði Breiðfjörð

Harry Redknapp tekur við Porstmouth (Staðfest)

Stuðningsmenn Portsmouth eftir að Redknapp hætti hjá félaginu í fyrra.  Nú er Redknapp væntanlega orðinn vinur þeirra á ný.

Stuðningsmenn Portsmouth eftir að Redknapp hætti hjá félaginu í fyrra. Nú er Redknapp væntanlega orðinn vinur þeirra á ný.

Canon

Mynd: Getty Images

Einum mesta farsa desember mánaðar er lokið því Harry Redknapp hefur tekið við knattspyrnustjórn hjá sínu gamla félagi, Porstmouth. Þetta var tilkynnt á fréttamannafundi Porstmouth nú seinni partinn í dag en Redknapp sagði við það tækifæri að það hafi tekið sig innan við mínútu að skrifa undir samninginn um að taka við Portsmouth.
Redknapp hafði gengið út hjá Porstmouth fyrir ári síðan og tók við erkiféndum þeirra í Southampton. Hann hætti með Southampton um helgina til að taka við Portsmouth á ný en þar sem félögin voru ekki að ná saman um sárabætur virtist sem Redknapp yrði atvinnulaus og Portsmouth fór að leita að nýjum manni.

Málið leystist hinsvegar skyndilega í dag og Redknapp er tekinn við Portsmouth.

,,Það tók mig innan við mínútur að skrifa undir nýjan samning, og hann var ekki einu sinni með neinum upphæðum," sagði Redknapp á fréttamannafundinum.

,,Lykilatriðið í því að snú a aftru var að Milan vildi mig og var nógu stór til að segja, Harry, ég vil fá þig aftur," bætti hann við.

Þar sem Redknapp var samningsbundinn Southampton var honum óheimilt að ræða við Portsmouth þar til félögin komust að samkomulagi í dag. Hann útskýrði hinsvegar hvernig menn bera sig að þegar staðan er þessi og sagði að Frank Lampard eldri, faðir þess yngri sem ber sama nafn og er lykilmaður Chelsea, hafi verið tengiliðurinn í málinu.

,,Frank kom niðureftir á Chelsea leiik til að horfa á son sinn og fékk sér tesopa með Milan. Frank hringdi svo í mig á leiðinni heim og sagði: Ég held að hann vilji fá þig aftur. Og þannig hélt þetta áfram."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.