08.01.07 - 14:38
Guðmundur Dagur Ólafsson
Phil Bardsley til Aston Villa á láni (Staðfest)

Bardsley er kominn til Villa

Mynd: Getty Images

Bardsley er kominn til Villa

Mynd: Getty Images
Aston Villa hefur fengið hægri bakvörðinn Phil Bardsley á láni út tímabilið frá Manchester United en þetta er staðfest á heimasíðu félagsins í dag.
Martin O'Neill, knattspyrnustjóri Villa, staðfesti í gær að félagið hefði áhuga á Bardsley og viðræður væru hafnar. Núna er þeim viðræðum lokið og er því ljóst að Bardsley munu vera það sem eftir lifir tímabils á láni hjá Villa.
Bardsley var fyrr á tímabilinu á láni hjá Glasgow Rangers en hann lenti upp á kant við Paul le Guen, sem nýverið hætti sem knattspyrnustjóri Rangers, og spilaði því aðeins nokkra leiki með liðinu.
Innifalið í samkomulaginu milli félaganna er að Bardsley, sem er 21 árs gamall, fær ekki að spila um næstu helgi þegar Villa sækir United heim á Old Trafford. Hans fyrsti leikur með félaginu verður því um þar næstu helgi þegar Watford kemur í heimsókn á Villa Park.

Heimild: Heimasíða Aston Villa