08.01.07 - 15:10
Magnús Már Einarsson
Stokes til Sunderland (Staðfest)

Stokes fagnar marki með U-19 ára landsliði Íra.

Mynd: Getty Images

Stokes fagnar marki með U-19 ára landsliði Íra.

Mynd: Getty Images
Sunderland hefur keypt framherjann Anthony Stokes frá Arsenal á tvær milljónir punda og hefur hann skrifað undir þriggja og hálfs árs samning við félagið.
Talið var að hinn átján ára gamli Stokes væri á leið til Charlton eftir að Gordon Strachan stjóri Glasgow Celtic, sem hafði áhuga á leikmanninnum, sagði hann vera á leið til úrvalsdeildarfélagsins.
Stokes skoraði sextán mörk í átján leikjum fyrir Falkirk á þessari leiktíð þar sem hann var í láni hjá félaginu frá Arsenal. Þessi U-21 árs landsliðsmaður Íra lék einn leik með aðalliði Arsenal á tíma sínum hjá félaginu.

Heimild: BBC