08.01.07 - 21:31
Nigel Quashie til West Ham (Staðfest)

Nigel Quashie.

Mynd: Getty Images

Nigel Quashie.

Mynd: Getty Images
Eggert Magnússon og félagar hans í West Ham hafa gengið frá kaupunum á Nigel Quashie frá WBA. Quashie er miðjumaður og er kaupverðið um 1,5 milljónir punda en Hamrarnir þurfa að reiða fram 250 þúsund pund til viðbótar takist þeim að bjarga sér frá falli.
Hinn 28 ára gamli Skoti styrkir miðsvæði West Ham enn meira eftir komu Luis Boa Morte frá Fulham sem kemur einmitt á heimsókn á Upton Park á laugardaginn. Báðir leikmenn eru líklegir til að spila þar en Quashie skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning við West Ham.
"Ég vil þakka Nigel fyrir framlag hans hérna frá því hann gekk til liðs við okkur. Nigel lýsti nýverið yfir áhuga sínum á því að fara aftur í úrvalsdeildina," útskýrði Tony Mowbray, stjóri WBA.
Quashie hefur fallið úr ensku úrvalsdeildinni með fjórum félögum, QPR, Nottingham Forest, Southampton og WBA og verður því að koma í ljós hvort hann muni góðri lukku stýra hjá West Ham.

Heimild: BBC