Fotbolti.net
08.01.08 - 17:43
Magnús Már Einarsson

Laurent Robert til Derby (Staðfest)

Laurent Robert til Derby (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Franski vinstri kantmaðurinn Laurent Robert hefur gert samning við Derby County út tímabilið en hann hefur verið á reynslu hjá félaginu undanfarna daga.
Robert á reyndar ennþá eftir að fá leikheimild en menn hjá Derby vona að hún komi í tæka tíð fyrir leik liðsins gegn Wigan á laugardag.

,,Ég er mjög ánægður því ég skrifaði undir í morgun og fyrir mig er það frábært," sagði Robert sem lék á sínum tíma með Newcastle og Portsmouth á Englandi.

,,Stjóri Derby hringdi í umboðsmann minn og sagðist vilja fá mig. Ég kom fljótt því að gæðin og andrúmsloftið í ensku úrvalsdeildinni eru þau bestu í heimi.

,,Ég þekki ekki borgina en fjölskylda mín kom hingað á föstudag og ég er mjög ánægður með að vera kominn aftur til Englands með Derby. Staða liðsins er svolítið erfið en ég er hér til að hjálpa með reynslu minni og leggja hart að mér,"
bætti Robert við en hann hafði verið félagslaus frá því í sumar er hann yfirgaf Levante.

Derby hefur átt í vandræðum á tímabilinu og er í botnsæti ensku úrvalsdeildarinnar en Paul Jewell stjóri liðsins er ánægður með að fá Robert fyrir þá hörðu baráttu sem er framundan.

,,Hæfileikar hans eru óumdeilanlegir og þetta gætu verið góð kaup fyrir okkur. Ég er vongóður um að við munum ná því besta úr honum hér og ef við gerum það höfum við góðan leikmann í höndunum," sagði Jewell sem hefur verið að styrkja lið Derby að undanförnu.

Auk Robert hefur Derby fengið framherjann Emanuel Villa og varnarmanninn Danny Mills. Þá er Robbie Savage væntanlega á leið til liðsins frá Blackburn.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.