Fotbolti.net
08.01.21 - 21:00
Aksentije Milisic

„Nokkrir af þeim eru svo ungir að foreldrar þeirra skutluðu þeim á Villa Park"

Fyrir leikinn í kvöld.

Fyrir leikinn í kvöld.

Canon

Mynd: Getty Images

Nú er í gangi leikur Aston Villa og Liverpool á Villa Park í Birmingham í þriðju umferð ensku bikarkeppninnar.
Villa stillir upp unglingaliði sínu en 14 reyndust smitaðir hjá félaginu og þar af 10 leikmenn. Æfingasvæði félagsins er lokað og því þurfti liðið að stillla upp unglingaliðinu gegn Liverpool.

Þegar þetta er skrifað er staðan 1-1. Sadio Mane kom Liverpool yfir í byrjun leiks en Louie Barry gerði sér lítið fyrir og jafnaði fyrir Villa undir loks fyrri hálfleiks.

Liverpool er með sterkt lið inn á með leikmenn á borð við Sadio Mane, Mohamed Salah, Jordan Henderson og Georginio Wijnaldum.

„Nokkrir af þeim eru svo ungir að foreldrar þeirra þurfti að skutla þeim á Villa park í kvöld! sagði Christian Purslow formaður Villa fyrir leikinn í kvöld.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.