Tyrkneska stórveldið Besiktas bætti ýmsum leikmönnum við hópinn hjá sér í janúarglugganum og var miðvörðurinn Emmanuel Agbadou sá dýrasti.
Besiktas krækti í Agbadou á föstudaginn, sem var síðasti dagur janúargluggans í Tyrklandi, og borgaði um 20 milljónir evra fyrir.
Félagið kaupir hann úr herbúðum Wolves en Agbadou er 28 ára gamall og var mikilvægur hlekkur í varnarlínu Úlfanna á síðustu leiktíð.
Hann spilaði 14 úrvalsdeildarleiki á yfirstandandi tímabili enda missti hann af stórum hluta desember og janúar útaf Afríkukeppninni.
Auk hans er suður-kóreski framherjinn Oh Hyeon-gyu kominn úr röðum Genk fyrir um 15 milljónir evra eftir að hafa skorað 10 mörk í 32 leikjum fyrir belgíska félagið á tímabilinu.
Amir Murillo er þá kominn úr röðum Marselile ásamt Kristjan Asllani á lánssamningi frá Inter og Yasin Özcan frá Aston Villa.
"????????? ???????????????????????? ???????????????? ????????????????" ???? pic.twitter.com/iuTtOT51CY
— The Black Eagles (@BesiktasEnglish) February 7, 2026
Athugasemdir




