Ronaldo má fara - Chelsea í baráttuna um Vlahovic - Ramos aftur í frönsku deildina?
   sun 08. febrúar 2026 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Eboué skrifar undir hjá Chelsea (Staðfest)
Mynd: Chelsea
Hinn sextán ára gamli Mathis Eboué er búinn að skrifa undir sinn fyrsta atvinnumannasamning.

Hann skrifar undir hjá Chelsea sem væri ekki frásögu færandi nema fyrir þær sakir að hann er sonur fyrrum bakvarðarins Emmanuel Eboué, sem lék fyrir Arsenal frá 2004 til 2011 og var í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum.

Mathis Eboué verður 17 ára gamall í lok febrúar og leikur sem sóknarsinnaður miðjumaður.

Hann er með 2 mörk í 7 æfingalandsleikjum fyrir U16 og U17 landslið Englands og verður áhugavert að fylgjast með þróun hans næstu árin.
Athugasemdir
banner
banner