sun 08. febrúar 2026 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Markahæsti leikmaður Hauka fer í KÁ (Staðfest)
Mynd: KÁ knattspyrnufélagið ásvellir
KÁ er búið að tryggja sér þjónustu Fannars Óla Friðleifssonar sem kemur úr röðum nágrannaliðs Hauka.

Fannar Óli er stór biti fyrir KÁ en hann var markahæsti leikmaður Hauka á síðustu leiktíð, með 10 mörk í 21 leik í 2. deildinni.

KÁ rúllaði yfir 4. deild í fyrra og mun því leika í 3. deild komandi sumar. Félagið er í stórsókn og sendir skýr skilaboð með því að ganga frá samningi við Fannar.

Fannar hjálpaði Haukum að enda í sjöunda sæti í 2. deild í fyrra og gæti reynst algjör lykilmaður fyrir KÁ.

Fannar, sem er fæddur 1998, er uppalinn hjá Haukum og hefur spilað yfir 100 keppnisleiki fyrir félagið. Hann hefur einnig leikið með ÍH, KÁ og Álftanesi á ferlinum.



Athugasemdir
banner