08.03.05 - 07:53
Hafliði Breiðfjörð
Kjartan Einarsson í Keflavík (Staðfest)


Mynd: Merki


Mynd: Merki
Kjartan Einarsson gekk í gær í raðir Keflavíkur en hann hefur æft með liðinu frá því í upphafi árs. Kjartan lék með Víkingum Ólafsvík í fyrra og skoraði þar fimm mörk í fimmtán leikjum eftir að hafa komið til þeirra í byrjun móts.
Kjartan er ekki ókunnugur í Keflavík því þar lék hann til ársins 1997 er hann fór í Breiðablik. Hann er 37 ára gamall og hefur leikið 167 leiki í efstu deild hér á landi og skorað í þeim 37 mörk. Hjá Keflavík hefur hann leikið 88 leiki og skoraði í þeim 21 mark. Hann á að baki 3 landsleiki fyrir íslands hönd.
