08.03.08 - 13:38
Hörður Snævar Jónsson
Brassarnir í Þrótti sömdu til tveggja ára (Staðfest)

Isamel og Biro við undirskriftina í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Carlos Alexandre Bernal og Ismael Da Silva Fransisco hafa nú skrifað undir tveggja ára samning við Þrótt en þeir hafa verið á reynslu hjá félaginu undanfarnar vikur.
Biro er 24 ára gamall og er uppalinn hjá Santos FC í Sao Paulo í Brasilíu og fór upp í gegnum knattspyrnuakademíu liðsins.
Biro lék sína fyrstu leiki í meistaraflokki með Santos en hefur síðan leikið með nokkrum liðum í Brasilíu í næst efstu og þriðju efstu deild, síðast Jcaty SC þar sem hann var fyrirliði liðsins.
Biro hefur leikið yfir 80 leiki í Brasilísku deildarkeppninni og hefur skorað í þeim 28 mörk. Biro er örfættur og getur leikið í flestum stöðum á miðjunni eða sem bakvörður.
Biro er gríðarlega tekknískur og marksækinn leikmaður sem verður vafalaust gaman að fylgjast með í sumar. Biro hefur allan sinn feril leikið í Brasilíu og er nú í fyrsta skipti að leika í Evrópu.
Ismael er 23 ára gamall og er framherji. Hann er uppalinn hjá Sport Club Internacional sem er eitt af stóru liðunum í Brasilíu. Isamel kemur, líkt og Biro, upp í gegnum knattspyrnuakademíu í sínu uppeldisfélagi.
Uppeldisfélagið, Internacional, er frá Porto Alegre í Brasilíu og með liðinu hafa leikið margir af þekktustu knattspyrnumönnum Brasilíu, I
Ismael hefur leikið yfir 70 leiki í Brasilísku deildarkeppninni og skoraði í þeim 37 mörk. Í Portúgal hefur Ismael spilað 43 leiki og skoraði í þeim 24 mörk.
Samtals á Ismael að baki um 113 deildarleiki og hefur skorað í þeim 61 mark. Ismael lék fram að áramótum með portúgalska liðinu SC Covilhã í annarri deild, en fékk samning sínum rift til að ganga til liðs við Þrótt.
Ismael er stór og sterkur leikmaður með fína tækni og er sérlega fljótur og áræðinn.
Auk Brasilíumannanna hafa Þróttarar fengið fimm aðra leikmenn til liðs við sig í vetur. Liðið hefur fengið Sigmund Kristjánsson frá KR, danska leikmanninn Dennis Danry frá Herfölge, Bjarka Frey Guðmundsson frá Keflavík, Kristján Ómar Björnsson frá Haukum og Jens Elvar Sævarsson frá Fylki en hann lék reyndar með Þrótti á láni síðari hluta tímabilsins í fyrr