Þýska stórveldið Borussia Dortmund er búið að staðfesta yfirvofandi brottför Julian Brandt frá félaginu á frjálsri sölu.
Brandt er 29 ára gamall og vill takast á við nýja áskorun eftir sjö ár í Dortmund.
Brandt leikur sem sóknartengiliður og hefur verið í mikilvægu hlutverki á undanförnum árum.
Hann hefur í heildina komið að 125 mörkum með beinum hætti í 298 keppnisleikjum með Dortmund. Hann er með 10 mörk og 3 stoðsendingar í 32 leikjum á yfirstandandi tímabili.
Óljóst er hvað tekur við hjá Brandt en hann hefur meðal annars verið orðaður við ítalska stórveldið Inter og félög í ensku úrvalsdeildinni.
Hann er með 48 A-landsleiki að baki fyrir Þýskaland eftir að hafa verið algjör lykilmaður upp yngri landsliðin þar sem hann spilaði 58 leiki.
?? An update from Lars Ricken on Julian Brandt's contract situation. pic.twitter.com/C8PgPlLPuF
— Borussia Dortmund (@BlackYellow) March 7, 2026
Athugasemdir



