Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
   sun 08. mars 2026 21:00
Ívan Guðjón Baldursson
Fram fær liðsstyrk úr Hafnarfirði og Mosfellsbæ (Staðfest)
Kvenaboltinn
Mynd: Fram
Fram var að kynna til leiks tvo nýja leikmenn sem munu leika með meistaraflokki kvenna komandi sumar.

Hanna Faith Victoríudóttir er komin úr röðum Aftureldingar. Hún leikur sem hægri kantmaður og spilaði 15 deildarleiki fyrir Mosfellinga í Lengjudeildinni í fyrra.

Nú reynir hún fyrir sér með Fram í Bestu deildinni eftir að þær bláklæddu forðuðust fall. Hanna er fædd 2004 og er tveimur árum eldri heldur en Harpa Helgadóttir sem kemur á lánssamningi frá FH.

Harpa er vinstri bakvörður sem kom við sögu í 18 leikjum með FH í Bestu deildinni í fyrra.


Athugasemdir
banner