Rustu Recber útskrifaður af sjúkrahúsi

Rustu Recber.

Mynd: Getty Images

Rustu Recber.

Mynd: Getty Images
Fyrrum markvörðurinn Rustu Recber er útskrifaður af sjúkrahúsi. Hann var greindur með kórónuveiruna á dögunum og var lagður inn á sjúkrahús.
Eiginkona hans deilir því á samfélagsmiðlum að búið sé að útskrifa Recber af sjúkrahúsi.
„Þetta er góður dagur. Eiginmaður minn var útskrifaður eftir að hafa varið 11 erfiðum dögum á sjúkrahúsi," skrifaði Isil Recber á Instagram.
Recber er leikjahæsti leikmaður í sögu tyrkneska landsliðsins og hjálpaði hann þjóð sinni að landa þriðja sætinu á HM 2002. Hann spilaði fyrir Besiktas, Fenerbahce, Antalyaspor og Barcelona á ferli sínum, en hanskarnir fóru upp á hillu árið 2012.