Arnar Freyr Ólafsson hefur fengið traustið frá Óskari Hrafni í vetur. Hann kom frá HK í sumarglugganum í fyrra.
Það hefur vakið athygli í aðdraganda móts hversu mikið markvörður KR hefur spilað utan eigin vítateigs. Arnar Freyr Ólafsson er aðalmarkvörður KR í dag og hann hefur verið aftasti varnarmaður liðsins; verið duglegur við að komast í sendingar sem hafa ratað yfir eða í gegnum vörn KR-inga.
Það er áhætta fólgin í því og fékk Arnar að líta rauða spjaldið í úrslitaleik Lengjubikarsins gegn Fylki.
Það er áhætta fólgin í því og fékk Arnar að líta rauða spjaldið í úrslitaleik Lengjubikarsins gegn Fylki.
„Þið eigið eftir að sjá töluvert öðruvísi KR lið í sumar heldur en í fyrra. Hvort það verði betra eða verra, opnara eða lokaðra, það verður eiginlega að koma í ljós. En varnarleikurinn hjá okkur snýst ekki um það hversu margir eru til baka, heldur snýst um það hvað við gerum þegar við töpum boltanum, hversu kveikt er á okkur."
„Hann snýst líka um hvort við náum góðum ákvörðunum varðandi hvenær og hversu hátt markmaðurinn (kemur út), hvar hann stendur. Stundum er hann of hátt, stundum þarf hann ekkert að vera svona hátt. En það er erfitt að segja: „Heyrðu, komdu hátt en vetur svo alveg brjálæðislega skynsamur með belti og axlabönd þegar það á við." Við reynum að búa til 1-2 reglur, menn þurfa að vera skynsamir og síðan er það bara: „keyrum á þetta"," sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, í Útvarpsþættinum Fótbolti.net um helgina.
Hann var aftur spurður út í Arnar í Bikarmörkunum á RÚV eftir sigurinn á Val á mánudagskvöld.
„Auðvitað væri maður til í að það væru bara alltaf fullkomnar ákvarðanir; að markmaðurinn myndi bíða og fara á réttum tímapunktum. En því miður er manneskjan ekki þannig að hún tekur alltaf réttar ákvarðanir. Við verðum svolítið að reyna lifa með þessu; vonum að það verði fleiri réttar ákvarðanir heldur en ekki. Svo verður þetta oft skemmtilegra; þú byrjar á einhverju og svo fer það aðeins lengra, þú ætlaðir þér kannski ekki svona langt með það, en það er bara svo gaman. Þá áttu að bakka... áttu að lækka í góða laginu í partýinu?" sagði Óskar léttur á RÚV.
Óskar sagði þá að það væri alveg ljóst að varamarkvörður KR myndi byrja að hita á fyrstu mínútu ef ske kynni að hann þyrfti að stíga inn á völlinn.


