Tottenham vill Trafford - Maguire hafnaði Inter Miami - Liverpool og Newcastle fylgjast með ítölskum varnarmanni
   mið 08. apríl 2026 09:30
Fótbolti.net
Hver verður látinn taka pokann sinn fyrstur?
Aleksandar Linta, Jökull Elísabetarson og Lárus Orri Sigurðsson.
Aleksandar Linta, Jökull Elísabetarson og Lárus Orri Sigurðsson.
Mynd: Samsett/Fótbolti.net
Veðbankar telja líklegast að Aleksandar Linta hjá ÍBV verði fyrsti þjálfarinn í Bestu deildinni sem fer úr starfi; verði rekinn eða hætti. Epicbet er með stuðla um hvar fyrstu þjálfaraskiptin eru líklegust til að verða.

Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, var talinn líklegastur en eftir að ÍBV féll úr bikarnum gegn Lengjudeildarliði Þróttar var stuðullinn á Linta lægstur.

Næsti þjálfari sem fer úr starfi (Epicbet)
4,00 Aleksandar Linta - ÍBV
5,00 Jökull Elísabetarson - Stjarnan
6,00 Lárus Orri Sigurðsson - ÍA
6,00 Haraldur Freyr Guðmundsson - Keflavík
7,50 Hermann Hreiðarsson - Valur
9,00 Ólafur Ingi Skúlason - Breiðablik
10,00 Hallgrímur Jónasson - KA
15,00 Jóhannes Karl Guðjónsson - FH
15,00 Sigurður Heiðar Höskuldsson - Þór
20,00 Rúnar Kristinsson - Fram
25,00 Óskar Hrafn Þorvaldsson - KR
35,00 Sölvi Geir Ottesen - Víkingur

Þegar aðrir valmöguleikar fyrir Bestu deildina eru skoðaðir þá er Emil Atlason hjá Stjörnunni talinn líklegastur til að verða markakóngur (5,00) og þar á eftir koma Eiður Gauti Sæbjörnsson hjá KR (6,00), Viktor Jónsson hjá ÍA (7,00) og þeir Valdimar Þór Ingimundarson hjá Víkingi og Aron Sigurðarson í KR (báðir 8,00).
Slapp
banner
banner