PSG er í góðum málum eftir sigur á Liverpool í fyrri leik liðanna í París í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Heimamenn hófu leikinn af krafti og Desire Doue kom liðinu yfir snemma leiks þegar hann átti skot sem fór af Ryan Gravenberch og sveif yfir Giorgi Mamardashvili í marki Liverpool.
Heimamenn hófu leikinn af krafti og Desire Doue kom liðinu yfir snemma leiks þegar hann átti skot sem fór af Ryan Gravenberch og sveif yfir Giorgi Mamardashvili í marki Liverpool.
PSG réð lögum og lofum í fyrri hálfleik en Liverpool náði ekki einu einasta skoti að marki franska liðsins.
Liverpool náði fyrsta skotinu að marki snemma í seinni hálfleik en Hugo Ekitike átt slakt skot sem var víðsfjarri markinu.
PSG tvöfaldaði forystuna eftir rúmlega klukkutíma leik þegar Khvicha Kvaratskhelia fór framhjá Joe Gomez og Gravenberch. Hann lék síðan á Mamardashvili og skoraði örugglega í autt markið.
Dómarinn dæmdi vítaspyrnu stuttu síðar þegar hann taldi að Ibrahima Konate hafi brotið á Warren Zaire-Emery en hann skoðaði atvikið í VAR og sá að Konate náði boltanum og tók ákvörðunina til baka.
Ousmane Dembele var nálægt því að gera út um leikinn undir lok leiksins en hann skaut í stöngina eftir skyndisókn.
Atletico Madrid vann frábæran sigur á Barcelona á Nývangi. Marcus Rashford var fyrstur til að koma boltanum í netið eftir undirbúning Lamine Yamal en sá síðarnefndi var dæmdur rangstæður.
Undir lok fyrri hálfleiks fékk Pau Cubarsi rautt spjald fyrir að brjóta á Guliano Simeone sem var að sleppa í gegn og aukaspyrna dæmd. Julian Alvarez skoraði glæsilegt mark úr aukaspyrnunni og kom Atletico yfir.
Rashford var líflegur í upphafi seinni hálfleiks og fékk tvö góð færi en staðan hélst óbreytt.
Alexander Sörloth innsiglaði sigur Atletico þegar hann skoraði eftir fyrirgjöf frá Matteo Ruggeri.
Paris Saint Germain 2 - 0 Liverpool
1-0 Desire Doue ('11 )
2-0 Khvicha Kvaratskhelia ('65 )
Barcelona 0 - 2 Atletico Madrid
0-1 Julian Alvarez ('45 )
0-2 Alexander Sorloth ('70 )
Rautt spjald: Pau Cubarsi, Barcelona ('44)


