Liverpool hefur verið í miklum vandræðum á tímabilinu og Mohamed Salah, einn besti leikmaður heims undanfarinna ára, hefur verið langt frá sínu besta.
Arne Slot ákvað að byrja með hann á bekknum í kvöld gegn PSG. Það eru hins vegar góðar fréttir fyrir Liverpool að Alexander Isak er í hópnum í fyrsta sinn síðan í lok desember.
Arne Slot ákvað að byrja með hann á bekknum í kvöld gegn PSG. Það eru hins vegar góðar fréttir fyrir Liverpool að Alexander Isak er í hópnum í fyrsta sinn síðan í lok desember.
„Þetta er líklega í eitt af fáum skiptum sem ég hef þurft að taka mjög erfiða ákvörðun á tímabilinu," sagði Slot.
„Of oft hef ég ekki þurft að taka ákvörðun út af meiðslum eða leikmönnum sem geta ekki spilað allan leikinn. Þetta er í nánast fyrsta sinn á tímabilinu sem ég er með marga leikmenn á bekknum sem geta haft áhrif á leikinn."
„Það er ekki bara Salah, líka Alexander Isak, Andy Robertson, Curtis Jones, Federico Chiesa, Trey Nyoni og Rio Ngumoha. Það er eðlilegt fyrir félag eins og okkur en því miður höfum við ekki verið oft í þessari stöðu á tímabiilinu;" sagði Slot að lokum.
PSG er með 1-0 forystu þegar fyrri hálfleik fer að ljúka.

