Fotbolti.net
08.05.08 - 14:47
Hörður Snævar Jónsson

Esben Madsen í ÍA (Staðfest)

Esben Madsen í ÍA (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Skagamenn hafa staðfest komu danska markvarðarins, Esben Madsen en hann mun leika með liðinu í sumar. Þetta kemur fram á vefsíðu félagsins.
Skagamenn hafa verið að leita af markverði undanfarið eftir að Páll Gísli Jónsson meiddist.

Haraldur Björnsson markvörður Heart hafði æft með ÍA en hann hefur verið að glíma við meiðsli og því var ákveðið að leita annað.

Esben er 26 ára gamall og kemur frá danska liðinu AB en hann hefur verið varamarkvörður liðsins.

Hann á 15 leiki að baki með aðalliði félagsins en hann mun eflaust standa á milli stanganna þegar liðið mætir Breiðablik á laugardag í 1. umferð Landsbankadeildarinnar.

Heimild: Heimasíða ÍA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.