Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 08. maí 2021 20:26
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Aguero biður liðsfélaga, starfsfólk og stuðningsmenn afsökunar
Mynd: EPA
Sergio Aguero tók heldur betur slaka ákvörðun á vítapunktinum í leik Manchester City og Chelsea í dag. Staðan var 1-0 þegar Aguero tók vítið í uppbótartíma fyrri hálfleiks.

Aguero ákvað að reyna svokallað panenka víti þar sem vippað er á mitt markið.

Sú tilraun mislukkaðist vægast sagt og Edouard Mendy í marki Chelsea greip spyrnuna.

Chelsea kom til baka í seinni hálfleik og vann 1-2 sigur. Aguero baðst afsökunar á þessari tilraun eftir leik. Ef City hefði unnið væri liðið orðið Englandsmeistari en ljóst að liðið þarf að bíða aðeins lengur.

„Ég vil biðja liðsfélagana, starfsfólkið og stuðningsmenn afsökunar á að klikka á þessu víti. Þetta var slæm ákvörðun og ég tek fulla ábyrgð," segir Aguero.
Athugasemdir
banner
banner
banner