Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
Ray Anthony: Grenjum í kvöld
Maggi: Ákall á Mosfellinga
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
„Þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum"
Mattías Kjeld: Valur gat ekki lofað mér mínútum
Nenad: Búið að vera töfrasirkús
Jóhann Birnir: Eitthvað kæruleysi hjá öllum
„Þá er ég ekki það grænn og vitlaus að ég get alltaf hrósað okkur fyrir frábært spil og ægilega óheppnir"
Borja: Allt of dýrt að fá á sig mörk úr föstum leikatriðum
Gunnar Heiðar: Þetta er erfiðasta fæðing sem ég hef séð
Davíð Smári: Miklar tilfinningar að keyra inn í bæinn
Birnir Snær: Reynir mest á hausinn
Arnór Ingvi: Allt á uppleið í KR og í Vesturbænum
Óskar Hrafn: Ber mikla virðingu fyrir körfu- og handboltaliðum
Hemmi: Ég er grautfúll
Gylfi: Mjög góðir þó að staðan hjá þeim er eins og hún er
Sölvi: Þarf að setja meiri pressu á Kára
Jökull: Stuðningsmennirnir eiga meira skilið
   fös 08. maí 2026 22:40
Hafþór Örn Laursen
Óli Skúla hundóánægður: Spiluðum þetta upp í hendurnar á þeim
Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks
Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, var svekktur eftir 3-3 jafntefli gegn FH á Kópavogsvelli.

„Ég er hundóánægður að taka ekki meira úr þessu. Við mætum ekki til leiks í seinni hálfleik og getum sjálfum okkur um kennt, en því fór sem fór.''



Lestu um leikinn: Breiðablik 3 -  3 FH

Breiðablik leiddu í hálfleik 2-0, en á um það bil korteri sneru FH-ingar leiknum við og komust 2-3 yfir.

„Að hleypa þeim inn í þetta var það seinasta sem við ætluðum að gera. Það leit ekkert út fyrir að þeir ætluðu að gera neitt hérna en við spiluðum þetta upp í hendurnar á þeim með mistökum í uppspilum sem verður til þess að þeir skora mark og það gefur þeim líflínu.''

Anton Logi Lúðvíksson náði í seinasta leik gegn ÍBV að brjóta 100 leikja múrinn fyrir Breiðablik og var heiðraður fyrir leik. Einnig spilaði Andri Rafn Yeoman sinn 500. leik fyrir Breiðablik.

„Það er frábært að hafa svona stólpa í þessu liði. 500 leikir fyrir sama félagið er ótrúlegur áfangi og við erum mjög stoltir af Andra fyrir það.''

Breiðablik situr í 4. sæti eftir þennan leik með 12 stig. Þeir eiga í næstu umferð leik gegn Val á Hlíðarenda.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum fyrir ofan.
Slapp
banner
banner