08.06.07 - 23:52
Andri Fannar Stefánsson
KA fær Örn Kató Hauksson að láni frá Val (Staðfest)

Kató í baráttunni við Matthías Vilhjálmsson.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Miðjumaðurinn og baráttujaxlinn Örn Kató Hauksson hefur gengið til liðs við KA á lánssamningi til eins mánaðar en þetta staðfesti Gunnar Gunnarsson, stjórnarmaður knattspyrnudeildar KA við Fótbolta.net í kvöld.
Kató sem er uppalinn hjá KA heldur því heim í mánuð og á vafalítið eftir að styrkja þá í baráttunni í fyrstu deildinni.
Hann er fæddur árið 1982 og á að baki tvo U21 árs landsleiki. Hann hefur leikið 45 deildarleiki fyrir KA og ellefu bikarleiki.
Á síðasta tímabili lék hann fjórtán leiki fyrir Valsara en hann hefur enn ekki náð að stimpla sig inn í liðið á þessu tímabili.
KA-menn eru í sjöunda sæti 1. deildarinnar með fimm stig eftir fjóra leiki en þeir eiga leik inni á toppliðin tvö, Þór og Grindavík.