08.06.16 - 21:07
Ívan Guðjón Baldursson
Ási Arnars: Síðustu 20 mínúturnar voru eign Vestra
Auglýsing

Ási Arnars var partur af þjálfarateymi Eyjamanna í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fram, er ánægður með að vera kominn í 8-liða úrslit Borgunarbikarsins eftir 3-2 sigur á Vestra í kvöld.
„Markmiðið var að vinna leikinn, það tókst og við það er ég sáttur,\" sagði Ási eftir leik en bætti því svo við að hann hafi ekki verið sérstaklega ánægður með frammistöðuna.
„Spilamennskan var kaflaskipt. Við komum þokkalega sterkir í leikinn, náum að komast marki yfir en dettum svo í frekar passívan gír.
„Við verjumst samt vel í leiknum, þeira skapa sér enga hættu og við komumst svo í 3-0 í seinni hálfleik.\"
Vestri átti mjög góðan lokakafla og minnkaði muninn í 3-2. Ási segir það vera vegna þess að hann hafi skipt Dino Gavric, sem hefur verið að glíma við meiðsli, af velli.
„Síðustu 20 mínúturnar voru eign Vestramanna og við erum ánægðir með að hafa klárað leikinn.\"