Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   þri 08. júní 2021 16:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
White var orðlaus þegar Southgate hringdi - „Mjög óraunverulegt"
Með á EM
Með á EM
Mynd: Getty Images
„Þetta er búið að vera mjög óraunverulegt, ég bjóst ekki við því að vera hér. Þetta er magnað, það var í raun nóg að vera í 33 manna úrtakinu og að vera í lokahópnum er ótrúlegt," sagði Ben White sem kallaður var upp í landsliðshóp Englands eftir að Trent Alexander-Arnold meiddist.

Miðvörðurinn verður með Englandi á EM sem hefst seinna í vikunni. Hann sat fyrir svörum á blaðamannafundi í dag.

„Ég fékk símtal frá einhverjum í Brighton og sá sagði að Gareth Southgate myndi hringja í mig. Ég hef ekki ennþá móttekið þetta almennilega, þetta er öðruvísi en þær tilfinningar sem ég hef fundið til þessa. Ég var orðlaus og leið frábærlega," sagði White.

Hann sagði einnig að hann væri vanur því að horfa á England á stórmóti með mömmu sinni.

White er leikmaður Brighton og verður hann 24 ára í október.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner