Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 08. júní 2022 12:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Newcastle að tryggja sér Targett
Mynd: EPA
Það bendir flest til þess að Matt Targett verði orðinn leikmaður Newcastle á næstu dögum.

Vinstri bakvörðurinn var á láni hjá félaginu seinni hluta tímabilsins og var mikil ánægja með hans störf.

Newcastle er tilbúið að greiða tólf milljónir punda fyrir Targett sem er samningsbundinn Aston Villa. Hann er á leið í læknisskoðun hjá Newcastle í dag.

Sjá einnig:
Howe mun funda með Targett: Nauðsynlegur hlekkur í hópnum

Targett er 26 ára gamall og hefur verið á mála hjá Aston Villa síðan 2019 en þá kom hann frá uppeldisfélaginu Southampton.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner