Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   mán 08. júní 2026 23:55
Elvar Geir Magnússon
Brassi flautar HM í gang
Wilton Sampaio skammar James Rodriguez.
Wilton Sampaio skammar James Rodriguez.
Mynd: EPA
Bellingham steinhissa.
Bellingham steinhissa.
Mynd: EPA
Heimsmeistaramótið í fótbolta fer af stað á fimmtudagskvöld en FIFA hefur tilkynnt hvaða dómarar munu starfa á opnunarleiknum.

Brasilíumaðurinn Wilton Sampaio mun flauta mótið á en fyrsti leikur verður Mexíkó - Suður-Afríka á Azteca vellinum sögufræga í Mexíkóborg.

Báðir aðstoðardómararnir koma frá Brasilíu en fjórði dómarinn, Juan Benítez, frá Paragvæ. VAR dómari verður Nicolas Gallo frá Kólumbíu.

Sampaio dæmdi einnig á HM í Katar og með fréttinni er fræg mynd af svipbrigðum Jude Bellingham þegar Sampaio dæmdi leik Englands og Frakklands í 8-liða úrslitum mótsins 2022.

Alls er búið að opinbera dómara í fjórum fyrstu leikjum HM; Amin Mohamed frá Egyptalandi dæmir Suður-Kórea - Tékkland, Facundo Tello frá Argentínu dæmir Kanada - Bosnía og hinn hollenski Danny Makkelie mun dæma Bandaríkin - Paragvæ.



Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner