Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 08. júní 2026 15:36
Kári Snorrason
Fabio Grosso nýr stjóri Alberts (Staðfest)
Mynd: EPA
Fabio Grosso er tekinn við sem nýr stjóri Alberts Guðmundssonar og félaga í Fiorentina. Ítalinn skrifar undir tveggja ára samning við félagið.

Grosso yfirgaf Sassaulo skömmu fyrir helgi en hann kom Sassuolo upp í Seríu A á síðasta ári og þá hafnaði liðið í 11. sæti á þessari leiktíð.

Grosso er hvað þekktastur fyrir frammistöðu sína með Ítalíu á HM 2006. Hann skoraði fyrra markið í 2-0 sigri á Þjóðverjum í undanúrslitum mótsins og sigurvítið í vítakeppninni gegn Frökkum í úrslitaleiknum.

Það var á brattann að sækja hjá Fiorentina á nýloknu tímabili en liðið endaði í 15 sæti deildarinnar.

Stefano Piolo var rekinn frá Fiorentina eftir slaka byrjun og stýrði Paolo Vanoli liðinu út tímabilið.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner
banner