Nottingham Forest, Fulham og Sunderland hafa öll mikinn áhuga á belgíska miðjumanninum Arne Engels sem er samningsbundinn Skotlandsmeisturum Celtic.
Engels er 22 ára gamall og hefur verið lykilmaður í liði Celtic frá því að hann var keyptur fyrir tveimur árum. Hann er næstdýrasti leikmaður í sögu skoska stórveldisins og er með tvö ár eftir af samningi.
Forest reyndi að kaupa Engels í janúarglugganum en Celtic hafnaði öllum tilboðum úrvalsdeildarfélagsins, það hæsta numdi 25 milljónum punda.
Forest lítur á Engels sem mögulegan arftaka fyrir Elliot Anderson sem gæti verið á förum í sumar, en talið er að Celtic sé ekki reiðubúið til að selja miðjumanninn fyrir minna en 30 til 40 milljónir punda.
Engels er með fjóra landsleiki að baki fyrir Belgíu en var ekki valinn í hópinn sem fer á HM.



