Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 08. júní 2026 21:22
Ívan Guðjón Baldursson
Vináttulandsleikir: Olise með þrennu - Gakpo með sigurmark
Olise fagnar með Kylian Mbappe og Ousmane Dembele.
Olise fagnar með Kylian Mbappe og Ousmane Dembele.
Mynd: EPA
Ronald Koeman og Cody Gakpo.
Ronald Koeman og Cody Gakpo.
Mynd: EPA
Það fóru nokkrir vináttulandsleikir fram í dag þar sem evrópsku fótboltaþjóðirnar Frakkland og Holland mættu til leiks.

Stórstjarnan Michael Olise lék á alls oddi í 3-1 sigri Frakka gegn Norður-Írlandi. Olise gerði sér lítið fyrir og skoraði öll mörk heimamanna í leiknum sem fór fram í Lille.

Þetta var síðasti leikur Frakka fyrir riðlakeppni heimsmeistaramótsins þar sem liðið er í erifðum riðli með Senegal, Írak og Noregi. Riðillinn verður leikinn í Bandaríkjunum og er fyrsti leikur Frakka þriðjudaginn 16. júní klukkan 19:00 á íslenskum tíma.

Cody Gakpo var þá hetja Hollendinga í naumum sigri gegn Úsbekistan. Liðin mættust í New York.

Gakpo skoraði eina markið í fyrri hálfleik úr vítaspyrnu en svo fékk Guus Til að líta rauða spjaldið á 87. mínútu og jöfnuðu Úsbekar skömmu síðar.

Tíu Hollendingar gáfust þó ekki upp og fengu aðra vítaspyrnu seint í uppbótartímanum. Gakpo steig aftur á punktinn og skoraði til að tryggja sigur.

Hollendingar fengu mikið af góðum færum og voru óheppnir að vinna ekki með meiri mun, en Úsbekarnir komust þó afar nálægt því að krækja í jafntefli.

Hollendingar mæta til leiks næsta sunnudag gegn Japan í fyrstu umferð heimsmeistaramótsins og eru einnig í riðli með Svíþjóð og Túnis.

Frakkland 3 - 1 N-Írland
1-0 Michael Olise ('43 )
2-0 Michael Olise ('49 )
2-1 Patrick Kelly ('64 )
3-1 Michael Olise ('75 )

Holland 2 - 1 Úsbekistan
1-0 Cody Gakpo ('32 , víti)
1-1 Igor Sergeev ('92)
2-1 Cody Gakpo ('98 , víti)
Rautt spjald: Guus Til, Holland ('87)

Níger 0 - 1 Máritanía

Sri Lanka 4 - 1 Bútan

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner
banner
banner